Ég deildi þessari mynd á Instagram í liðinni viku og hef fengið nokkrar óskir um að birta uppskriftina. Þetta er í raun endurbirting; hún birtist í fyrsta sinn á síðunni minni 8. febrúar 2007. Síðan eru liðin mörg ár - heil þrettán ár.
Og þessi uppskrift er ekki frá mér komin. Konan mín, Snædís, á allan heiðurinn af þessari eldamennsku og hefur eldað hana margoft. Þetta er svona "go-to" uppskrift sem hún er löngu búin að fullkomna.
Gúllasið hennar Snædísar heimsótt aftur - 13 árum síðar
Hráefnalisti fyrir 4-6
500 g nautagúllas
4 gulrætur
1 rauðlaukur
1sellerístöng
2 hvítlauksrif
250 g sveppir
2 lárviðarlauf
1 dós tómatmauk (lítil)
1 msk papríkuduft
300 ml rauðvín
500 ml nautakraftur
150 ml rjómi
jómfrúarolía/smjör til steikingar
salt og pipar
2 bollar basmati hrísgrjón
Einfalt salat með pommengranat eplum
Saltið og piprið kjötið og brúnið að utan og setjið það svo til hliðar. Næst er að steikja grænmetið, niðurskornar gulrætur, saxaðan rauð- og hvítlauk, smátt skorið sellerí og niðursneidda sveppi þangað til að það er mjúkt. Losið kjötkraftinn af botninum með sleif.
Bætið svo tómatmauki saman við og látið steikjast áfram í nokkrar mínútur til að brúna tómatmaukið. Bætið papríkuduftinu, lárviðarlaufi og saltið og piprið vandlega.
Hellið svo rauðvíni saman við og sjóðið upp og síðan niður um helming. Þá bætið þið nautakraftinum við og látið krauma í 90 mínútur á hellu eða inni í 160 gráðu heitum ofni. Að lokum er rjóma bætt saman við og látið sjóða áfram í 20 mínútur. Það þarf stundum að smakka sósuna til með krafti, salti, pipar og soya - svona til að fá rétta bragðið.
Berið fram með soðnum hrísgrjónum og einföldu salati. Það sakar ekki að fá sér ljúffengt rauðvín með matnum. Við bárum fram Marques de casa Concha Etuiqueta frá 2017. Þetta er kraftmikið rauðvín, mikið berjabragð, tannínríkt, frekar þurrt með gott eikað eftirbragð. Gaf matnum ekkert eftir.
Verði ykkur að góðu!
Hvar fá menn svona paprikuduft?
ReplyDelete