Þessi færsla er í samstarfi við sænska félagið. Þau báðu mig um að búa til uppskrift af Västerbottenböku sem er ómissandi réttur á veisluborði þegar Kräftskiva er haldin.
Sænska félagið á Íslandi efnir til sinnar árlegu humarveislu í dag en félagið fagnar 65 ára afmæli í ár. Humarinn sem notaður er, gengur oftast undir nafninu vatnakrabbi (á sænsku: kräfta) og er lítill og rauður að lit og minnir um margt á humarinn frá Kanada, en þó umtalsvert minni.
Þessi krabbi lifir í stöðuvötnum og ám víða um heim og er unnt er að veiða hann í stöðuvötnum í Svíþjóð. Hann er gjarnan soðinn í söltu vatni með dilli og þykir einkar bragðgóður. Kräftskiva, sem er sænska nafnið á þessari humarveislu, er hefð sem má finna heimildir um allt frá sextándu öld. Þar má nefna sænska konunginn Karl Erik XIV (1560-1568), sem ræktaði vatnakrabba í varnarsíkjum sínum. Slík síki voru algeng umhverfis sænskar konungshallir. Vatnakrabbinn varð mjög vinsæll í Svíþjóð, svo mjög að hann var nálægt útrýmingu, en til að stöðva útrýmingu hans þurfti að setja reglur sem bönnuðu veiði nema í ágúst. Úr varð að árlegar krabbaveislur voru ávallt haldnar á haustin og eru það enn þann dag í dag.
Sagan segir, að í stærri borgum, hafi borð í þessum veislum verið skreytt með litríkum ljósum og pappadiskum. Með vatnakrabbanum var drukkið óhemju mikið af „nubbe“ (brennivínssnafs). Við þjóðaratkvæðagreiðsluna árið 1922 þar sem kosið var um áfengsibann varð vatnakrabbinn tákn um allar neikvæðu hliðarinnar á mikilli áfengisneyslu. Rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Albert Engström hannaði mynd á servíettu með textanum: „Vatnakrabbinn krefst þessara drykkja!“
Frá og með 1994 mátti borða vatnakrabbann allt árið um kring og hefur sænska félagið á Íslandi haldið árlega veislu, kräftskiva, á liðnum árum. Þrátt fyrir að Covid-19 hafi sett strik í reikninginn var ákveðið að halda í hefðirnar og hugsa í lausnum. Ákveðið var að búa til „veislupakka“ sem samanstendur af 1 kg af vatnakrabba, sænsku hrökkbrauði (knäckebröd), Västerbottenosti, ljúffengri uppskrift og söngvahefti.
Västerbottenosturinn er jafn mikilvægur og sjálfur vatnakrabbinn. Kannski var það áfengismagnið og að vatnakrabbinn sjálfur er ekki sérstaklega matarmikill að húsmæðurnar tóku upp á því að bjóða upp á ostaböku áður en veislan hófst, en þessi ostabaka er ávallt forréttur í krabbaveislunum.
Læknirinn í Eldhúsinu hefur gert sérstaka uppskrift af ostabökunni handa sænska félaginu að þessu sinni. Ragnar Freyr Ingvarsson er mikill Svíavinur, er sænskur ríkisborgari, og bjó hann sjálfur úti í Svíþjóð í fjöldamörg ár þegar hann var í sérnámi í Lundi. Félagið hefur kynnst honum gegnum fyrrverandi sendiherra Svía á Íslandi, Håkan Juholt. Sænska félagið hafði samband við Ragnar og bað hann um að gera uppskrift fyrir félagið og brást hann vel við og útbjó gómsæta uppskrift af böku með Västerbottenosti, reyktum lax og karamelliseruðum rauðlauk.
Uppskriftin verður að sjálfsögðu gefin út og send viðtakenda með veislupakkanum.
Västerbottenostur, sem er einkar bragðmikill, er nýjung á Íslandi en má meðal annars finna í Melabúðinni, Bónus og Hagkaup.
Ljúffeng Västerbottenbaka með reyktum laxi og karmelliseruðum rauðlauk
Hráefnalisti
Deig:
350 ml hveiti
150 g smjör við stofuhita
1 egg salt
Fylling:
3 egg
350 ml rjómi
1 1/2 rauðlaukur
150 g reyktur lax
50 g smjör
350 g Västerbottenostur
Svo er að fletja deigið í bökuform (pajform) og láta það bíða í um það bil 30 mínútur í ísskáp.
Þá er deigið bakað fyrir fram í 10-15 mínútur í 200 gráðu heitum ofni.
Næst er að hakka ostinn í grófa bita.
Skerðu reykta laxinn í bita og kryddaðu með pipar og salti eftir smekk.
Leggðu helminginn af laxinum og lauknum í bökuskelina og helltu síðan helmingnum af osta- og rjómablöndunni yfir.
Bættu þar næst restinni af laxinum og lauknum saman við og endaðu á því að hella afganginum af osta- og rjómablöndunni í skelina.
Bakaðu í miðjum ofni, um það bil 25-30 mínútur.
Bakan er tilbúin þegar hún hefur fengið fallegan lit og eldhúsið ilmar af dásamlega bráðnum Västerbotten osti.
Leyfðu henni svo að taka sig inn í ísskáp í sólarhring áður en hún er borin fram.
Næst er að skera niður í fallega sneiðar.
Þetta bar ég fram með hlaðborði af öðru góðgæti, ostum og skinkum og svo heimagerðri rifs- og bláberjasultu.
Bar einnig fram þessar ljúffengu innbökuðu kæfur frá Kjötbúðinni - bæði hreindýralifrarkæfu og gæsakæfu.
Þetta var algert sælgæti.
Mikið er gott að fá sér gott í gogginn.
No comments:
Post a Comment