"Ég fer í fríið, ég fer í fríið, ég fer í fríið" - Loksins er komið að því! Langþráð sumarleyfi hefst eftir nokkuð annasaman vetur. Ég held að ég hafi aldrei þurft á fríi að halda eins og nákvæmlega núna. Og mikið hlakka ég til. Ætla að nota leyfið til að leika við fjölskylduna mína, ditta að garðinum og eins og margir aðrir - ferðast um fallega landið okkar.
Þessa uppskrift gerði ég í gærkvöldi, tja, ef uppskrift má kalla. Það verður ekki öllu einfaldari eldamennska en þetta. Grilla kjöt, baka kartöflur, bræða ost! Þetta er eiginlega öll uppskriftin, svona næstum.
En aðalástæðan fyrir þessu bloggi er eiginlega þessi sósa - hún er ljúffengur einfaldleikinn uppmálaður.
Kominn í fríið - eldsnögg nautasteik með gullostasósu, bökuðum kartöflum og salati ala Villi Bjarki
Þegar eldamennskan er svona einföld, skipta hráefnin ennþá meira máli.
Fyrir 8
1,2 kg nautasteikur - ég var með þunnt skorna sirloin
1,5 gullostur
8 bökunarkartöflur
góð jómfrúarolía
salt og pipar
graslaukur til skreytingar
Sósa fyrir bökuðu kartöflurnar
2 msk grísk jógúrt
2 msk sýrður rjómi
2 tsk hlynsíróp
1 hvítlaukrif
handfylli graslaukur
salt og pipar
Salat ala Villi
Fullt af grænum laufum
haloumi ostur
íslenskir tómatar
rauð papríka
góð jómfrúarolía
salt og pipar
Ætli það að hræra saman í þessa sósu myndi ekki geta kallast eldamennska?
Setja jógúrt og 18% sýrðan rjóma í skál og hræra saman með hökkuðu hvítlauksrifi, graslauk, sírópi og salti og pipar. Láta standa í 30 mínútur eða svo.
Ég hvet ykkur til að prófa þetta. Það má líka alveg bæta við smá rjóma til að auka við magnið án þess að það komi niður á bragðinu að neinu ráði.
Takið ostinn úr pakkningunum. Setjið í pott eða á litla pönnu.
Bakið við 180 gráðu hita.
Hrærið.
Ég notaði góða jómfrúarolíu á kjötið. Örlitla áður en var grillað og aðeins á eftir líka.
Salt og pipar. Grillað á blússheitu grilli þangað til að viðeigandi kjarnhita var náð.
Skreytt með smá graslauk.
Kartöflurnar voru bakaðar í 180 gráðum heitum ofni á beði af salti í rúmlega klukkustund. Bornar fram með sýrðrjómasósunni.
Vilhjálmur sá um salatið. Græn lauf, steiktur haloumi, næfurþunnir tómatar og papríkusneiðar. Góð jómfrúarolía og skvetta af rauðvínsediki. Salt og pipar.
Með matnum drukkum við þetta ljúffenga vín - Masi Corbec er framleitt í Argentínu. Þetta vín er gert úr blöndu af corvína þrúgum sem eru upprunalega frá Norður Ítalíu - en eru núnar ræktaðar í Argentínu og Malbec sem er ráðandi í þarlenskri framleiðsli. Mér finnst þetta vín einstaklega ljúffengt. Ég tel mig líka aðeins ábyrgan fyrir því að þetta vín er flutt inn til Íslands en ég smakkaði það fyrst þegar ég var í heimsókn hjá framleiðandanum í Veróna og óskaði sérstaklega eftir því að það væri í boði á Íslandi. Þetta vín er dökkrúbinrautt í glasi. Ljúfir tónar af ávexti, smá súkkulaði, vanillu og svo eru eikartónar og á tungu. Vínið hefur góða fyllingu og er þægilega mjúkt og með löngu eftirbragði.
Einstaklega ljúffeng og auðveld máltíð.
Bon appetit!
-------
Flest hráefnin í þessari færslu fást í verslunum Hagkaupa
Hi guys! keep it up to write a site like this.
ReplyDeleteClick
here for
more
info
Nice story. It's good that they have made something like these. This looks a whole lot better to me.
ReplyDeleteClick
here for
more
info
This is such a great resource that you are providing and you give it away for free. I love seeing blog that understand the value of providing a quality stuff you pos
ReplyDeleteClick
here for
more
info
That was not an easy to cook meal, it was very intricate meal with so many ingredients. Although the meat looks delicious, and the salad looks yummy. I like the idea of baking the tomatoes, usually in salad the tomatoes used are raw.
ReplyDeleteAre you good in simulator games? Check this Township game. It is a simulation games with the combination of city building and farming.
download the app now.
https://chrome.google.com/webstore/detail/township-extension/benfoecbgpmekdahoeiejaalagmdajhh